Hjúkrunarheimilið Fellsendi

03.jpg

Læknisþjónusta

Heilsugæslulæknar í Búðardal veita almenna læknisþjónustu á Fellsenda. Þeir hafa fastan viðverutíma á Fellsenda á fimmtudagsmorgnum en þá funda þeir með hjúkrunarfræðingum, ganga stofugang og hitta þá vistmenn sem þurfa þykir eða sem óskað hafa eftir læknisviðtali. Læknir er alltaf á bakvakt og veitir starfsfólki ráðgjöf í síma eða kemur í vitjun ef þörf krefur. Heilsugæslulæknir hefur milligöngu um að leita til annarra sérfræðinga þegar ástæða er til.
Samstarfssamningur er í gildi milli Fellsenda og geðsviðs Landspítala og kemur geðlæknir frá Landspítala vestur á Fellsenda að jafnaði tvisvar á ári. Einnig hafa læknar og hjúkrunarfræðingar góðan aðgang að símaráðgjöf frá sérfræðingum geðsviðs.

 

Upplýsingar

Hjúkrunarheimilið Fellsendi
Fellsenda - 371 Búðardal
Sími: 434 1230
Fax: 434 1631