Hjúkrunarheimilið Fellsendi

03.jpg

Guðþjónustur

Helgistundir eru í umsjón sóknarprests einn föstudag í mánuði kl. 11.  Kyrrðarstundir eru alla föstudaga á föstu og aðventu á Fellsenda kl. 11.  Einnig á jólum og páskum.  Stundirnar eru vel sóttar og virk þátttaka íbúa. Þar að auki fer hópur íbúa af Fellsenda á Uppstigningardag í guðsþjónustu á svæðinu þegar kirkjudagur aldraðra er haldinn og endað með kaffi á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni og skoðuð handverkssýning. Mikil tilhlökkun er fyrir þá ferð.  Einnig hafa íbúar farið í guðsþjónustur í kirkjum nágrennisins.

 

Upplýsingar

Hjúkrunarheimilið Fellsendi
Fellsenda - 371 Búðardal
Sími: 434 1230
Fax: 434 1631