Lögð er áhersla á góðan heimilismat og nýtingu hráefnis í eldhúsinu hér á Fellsenda. Á haustin eru nýuppteknar kartöflur úr kartöflugarðinum en þetta er annað haustið sem kartöflur eru ræktaðar á Fellsenda. Í eldhúsinu starfa 3 starfsmenn; Jóhannes Óskarsson yfirmatráður, René Jenke og Þorvaldur Hauksson.
