Hjúkrunarheimilið Fellsendi

06.jpg

Dýrin á Fellsenda

Sumarið 2010 fékk Fellsendi nokkrar unghænur og unga og voru tveir hænsnakofar settir upp fyrir hænsnin. Íbúarnir eru duglegir að fara út að skoða hænurnar og hafa þeir ákaflega gaman að fylgjast með þeim valsa um lóðina. Flestar hænurnar hafa fengið nafn sem og hanarnir. Þeir sem hafa getu til eru duglegir að hjálpa til við umhirðu hænsnanna og eggjatýnslu svo eitthvað sé nefnt. Fyrsta eggið kom 14. október 2010 og vakti það mikla lukku. Í kjölfar þess voru settir upp varpkassar í annan kofann, og eggin hafa verið að koma eitt af öðru síðan þá. Í dag eru að meðaltali 10-12 egg á dag. Umhirða hænsnanna fellur undir starfsemi iðjunnar þar sem  íbúar eru virkjaðir eftir fremsta megni. Í dag ganga hænurnar frjálsar um lóðina á Fellsenda og fundust fyrstu ungarnir í byrjun ágúst 2011. Eru ungarnir orðnir 24 talsins og er von á fleirum.

Á Fellsenda búa tveir kettir sem heita Tása og Keli-Bambi, en þeir eru í eigu tveggja íbúa. Af og til kemur einn starfsmaður með smáhundinn sinn Dreka í heimsókn og vekur hann mikla lukku.

Í báðum matsölunum eru staðsett fiskabúr með mörgum fiskum. Íbúar hafa mjög gaman af þeim og skiptast á að gefa þeim að borða, og annast þá mjög vel.

fellsendi myndir settar inn 1. nv 2010 313