Vorið 2010 var aðstaða Iðjunnar fullgerð og tekin í notkun. Í Iðjunni er boðið upp á fjölbreytt starf og býðst íbúunum að koma og vinna við ýmis handverk eins og prjónaskap, mósaík, málun á t.d. gler og striga svo fátt eitt sé nefnt. Nýlega fjárfesti heimilið í glerbræðsluofni og eru íbúar hvattir til að framleiða ýmsa glervöru s.s. kertastjaka, skálar, diska o.fl. sem síðan er selt sem tækifærisgjafir og rennur ágóðinn af sölunni ýmist í ferðalög íbúanna eða efniskaup fyrir iðjuna. Einnig er verið að standsetja smíðaverkstæði þar sem karlmennirnir (en auðvitað konurnar líka) geta komið saman og unnið við margt sem tengist tréverki.
Alltaf er heitt á könnunni og er gott að koma og fá sér kaffisopa þó það væri ekki nema bara til að breyta um umhverfi. Haldin hafa verið böll, bíósýningar, kaffihúsakvöld, bingó og smákökugerð fyrir jól (þá voru t.d. skreyttar piparkökur og piparkökuhús) sem og sláturgerð. Einnig hafa íbúarnir tekið þátt í að raða niður útsæði og að sækja egg hjá okkar fallegu íslensku hænum (landnámshænur). Á hverjum miðvikudegi bjóða íbúarnir hver öðrum í vöfflukaffi í iðjunni. Þá skiptast þeir á að baka, leggja á borð og ganga frá. Þeim til halds og trausts eru Jófríður Anna, félagsliði og Ingibjörg Anna, iðjuþjálfi.
Starfsmaður Jófríður Anna Eyjólfsdóttir félagsliði.
