Allur aðbúnaðar á Fellsenda er framúrskarandi. Haustið 2006 flutti starfsemin í glænýtt 1480 fm húsnæði á einni hæð sem bætti alla aðstöðu svo um munaði hjá íbúum og starfsfólki. Á Fellsenda eru 28 rúmgóð einstaklingsherbergi. Í húsinu eru fjórar álmur, tveir matsalir og setustofur ásamt tveimur sjónvarpsstofum.
Gamla húsið, þar sem starfsemin fór fram á árum áður, er notað á margvíslegan hátt. Þar er félagsstarfið til húsa (Iðjan) og þar hefur einnig iðjuþjálfinn aðsetur. Einnig er sjúkraþjálfari með aðstöðu sína þar sem og húsvörður. Einn starfsmaður er búsettur í einu af herbergjunum í húsinu. Aðstandendum íbúanna kostur á að gista í gamla húsinu þegar þeir koma í heimsókn að Fellsenda.

